Tilgangur markaðsverkefnisins Horses of Iceland er að byggja upp orðspor íslenska hestsins um heim allan til að leggja grunn að aukinni verðmætasköpun og útbreiðslu hestsins á heimsvísu. Verkefninu var ýtt úr vör í apríl 2015 með aðkomu helstu samtaka og hagsmunaaðila í greininni, Íslandsstofu og stjórnvalda. 

Um er að ræða samstarf aðila í hestatengdri starfsemi og samstarfaðilar í Íslandshestamennsku um allan heim eru velkomnir, enda er um alþjóðlegt verkefni að ræða. Um 70 þátttakendur hafa verið í verkefninu, fyrirtæki, samtök og félög, þ.m.t. FHB, LH og íslenska ríkið.  Íslandsstofa sér um framkvæmd verkefnisins. 


Smelltu á myndina til að lesa bæklinginn á íslensku.

Allir sem að verkefninu koma taka þátt í að móta áherslur og markaðsaðgerðir og þeir eru kynntir á vefsíðu verkefnisins og í miðlum þess út á við. Stjórnvöld á Íslandi leggja verkefninu til 25 milljónir króna árlega í fjögur árlega gegn sama framlagi aðila í hestatengdri starfsemi. Verkefnið hefur nýlega verið framlengt til loka desember 2025.

Horses of Iceland leitar nú að nýjum samstarfsaðilum fyrir tímabilið 2022 - 2025.

Berglind Margo Þorvaldsdóttir, verkefnisstjóri hjá Íslandsstofu, veitir jafnframt allar frekari upplýsingar um verkefnið í gegnum tölvupóst, berglind@horsesoficeland.is eða í síma 511-4000.

Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2017

Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2018

Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2019

Samantekt af markaðsaðgerðum og árangur 2020

Ýtarlegt samantekt 2016 - 2020